Fabulous!

Í tilefni þess að hafa lufsast heima í þrjá daga og óverdósað á Sex and the city og í tilefni þess að Dóra, ótrúlega  fabulous vinkona mín kom heim úr "tan"ferð  frá Benidorm í gær ákváðum við  að slá saman í  hitting  yfir drykk á  Thorvaldsen.

Báðar verandi ógeðslega single og fabulous, eða afsakið, ég single og hún fabulous,  þá fengum við okkur strawberry mojito og ræddum yfir honum heimsmálin eins og okkur einum er lagið. Ákaflega notalegt á skreppa svona í drykk á miðvikudegi, ótrúlega Sexlegt and æ lov it!

Eftir drykkinn rölti ég heim svo single og svo fabulous, veit reyndar ekki hversu fabulous ég var  ofarlega á laugaveginum.. niðurrignd með skærgrænan 10-11 poka í annarri og Louis vuitton töskuna mína í hinni... En mér leið ákaflega notalega, svo hressandi að rölta svona í haustrigningunni.

Ég ætla mér núna að taka upp allskonar skemmtilega siði úr Sexinu, drekka cosmopolitan, vera fabulous ooog eitthvað fleira...

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins utterly fabjúlus og við erum, er þá ekki komin tími á aðra færslu?

Dóra (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 13:23

2 identicon

Ég mótmæli harðlega...þú ert of góður penni til að vera með svona illlæsilega síðu! Ú á ljósa stafi á svörtum grunni

Hrund (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband