Ég bý ein og þykir það voðalega notalegt, maður getur haft allt eins og manni sýnist og striplast um þegar manni hentar. Ég geri mikið af því, nágrönnum mínum örugglega til mikillar ánægju. Þar sem nýlega gerði ég þá uppgötvun að í fullri dagsbirtu, sem er soldið mikið af þessa dagana, þá er ein gardínan hjá mér nánast alveg gegnsæ. Þetta er eitthvað sem ég hafði engan veginn gert mér grein fyrir enda með dregið fyrir og gerði þannig bara ráð fyrir að ég væri njóta friðhelgi einkalífsins en ekki að bera mig fyrir alþjóð. Þetta fer meira að segja versnandi... því vaxandi sól og nýjum nágrönnum fylgja leikandi börn, í mínum garði!!! Og börnunum fylgja fullorðnir menn í fótbolta, enn og aftur í mínum garði!!! Sem gerir það að verkum að nú þarf ég að klæða mig inni á glugglausa baðherberginu mínu áður en ég hætti mér fram í stofu til að verða ekki vinsælasta manneskjan í götunni. Ég kveð stripldagana mína með söknuði og líður eins og fanga á eigin heimili, ég tala nú ekki um þegar stofuglugginn hjá mér er notaður sem fótboltamark! Fyrsta mál á dagskrá eftir próf er að fjáresta í nýjum gardínum...
Og ef að nágrannarnir mínir voru ekki búnir að uppgötva gegnsæju gardínuna mína þá ætla ég rétt að vona að þeir lesi ekki bloggið mitt og komist að hinu sanna...
Flokkur: Dægurmál | 3.5.2007 | 14:48 (breytt kl. 15:05) | Facebook
Athugasemdir
Já ég líka svolítið mikið í þessum bransanum.. að trítla um allt nakin heima hjá mér.. manns eigins nekt er manns eigins mannréttindi :D
Dóra (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 17:16
Stelpur. Viljiði hætta að tala um þetta! Ég hef ekki áhuga að vita af því að þið gangið um á júllunum og rassanum heima hjá ykkur Blis
Jólastrympa (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 08:59
Sko Helga mín, ég er nú kannski ekki endilega að tala um að ég sé að spranga um kviknakin, meira svona fáklædd. Ég kæri mig ekki um að nágrannarnir sjái mig fáklædda!
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, 4.5.2007 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.