Sólrún fór í ræktina...

Jæja er ný færsla ekki málið...  ég má ekki bregaðst æstum aðdáendum sem ætluðu alveg að missa það yfir skyndilegri og óvæntri endurkomu minni í bloggheima á síðustu dögum þessa herrans árs!

 

Ég fór í hina árlegu ferð mína í ræktina í síðustu viku... í þetta skiptið voru það Laugar, en þangað hafði ég ekki komið áður nema bara til að láta dekra við mig í Baðstofunni. Enda er það svona eiginlega meira minn stíll. En nú verður víst breyting þar á! Ég er óvart búin að skuldbinda mig til að gjöra svo vel að mæta að minnsta kosti einu sinni í viku niður í Laugar og láta skanna í mér augun... 

Ég verð þó seint einhver líkamsræktarfrík og ég er alveg sannfærð um að þegar fólk segir: áhugamál mín eru.. að fara í ræktina! Þá er það kláralega að ljúga... En jújú það er víst nauðsynlegt að hreyfa sig og ég ætla að reyna að rölta á bretti þarna niðurfrá að lágmarki einu sinni í viku. Svona yfir eins og allavega einum Friends þætti. Ég hitti reyndar á svo spennandi fréttaskýringaþátt á einhverri sjónvarpsstöðinni þarna um daginn að ég gleymdi mér um stund og hálfpartinn fauk af brettinu þegar staldraði við til að vera hissa yfir einhverju. Sem betur fer var ég ekki á mikilli ferð og tel ég það hafa orðið egói mínu til mikils happs...

 

Annars þá horfði ég á Pretty woman um daginn og viðurkenni það hér með að það var í fyrsta skipti sem ég sá hana alla... Fór svona í framhaldinu að velta fyrir mér hvort vændi hefði ekki aukist hjá ungum stúlkum þegar þessi mynd var sem vinsælust. Ég sé alveg fyrir mér að ungar stúlkur hafi séð þetta í hillingum... vonin um að hitta eins og einn Gere á götunni. eða hvað? Nei ég segi svona...


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Hvað gerist ef þú mætir ekki einu sinni í viku?

Freyja (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 23:39

2 identicon

einhvernveginn efast ég að stúlkur hafi séð vændi í glæstara ljósi eftir þá mynd hehe... þessi mynd er í uppáhaldi hjá mér.. en samt sem áður hef ég aldrei verið neitt hrifin af Richard Gere. Mér finnst hann bara ekkert sexy..

Eyrún (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 16:05

3 Smámynd: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir

Sko ef ég mæti ekki einu sinni í viku þá þarf ég að gjöra svo vel og borga fullt mánaðagjald, 5600 kr. takk fyrir! Annars fæ ég þetta frítt, svo það er til mikils að vinna...

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, 11.12.2008 kl. 18:01

4 identicon

Hvernig hefur gengið að mæta??

Eyrún (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband