Jæja nú var ég að koma hjá tíma hjá Hannesi Hólmstein, Málstofu um fjölmiðla og stjórnmál. Kúrsinn virkar afar spennandi, enda nýr fyrirlesari í hverjum tíma.
Í dag var það Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.
Þarna vorum við saman komin; ég, Hannes, Björn og samnemendur mínir í alltof lítilli stofu í Lögbergi að ræða fjölmiðla og stjórnmál. Ég sat fremst og nánast alveg ofan í Birni og Hannesi, ég gat séð á þeim nasahárin... En allt í lagi með það... Það var að sjálfsögðu rætt um fjölmiðlafrumvarp, um að færa blaðamennsku á Íslandi meira til hægri, því ef hún héldi áfram að færast meira til vinstri þá færi hún bara yfir brúnina og myndi þannig deyja! þá var rætt um að það vantaði nú gott borgarlegt hægrisinnað blað og fleira í þeim dúr... Allt gott og blessað.
Hannes og Björn að sjálfsögðu miklir félagar og flokksbræður skutu bröndurum hvor á annan hægri vinstri, aðallega hægri og hlógu svo dátt. Rifjuðu upp ólöglega útvarpsstöðvarflippið og ýmislegt fleira. Þá komu þeir ítrekað að kommentum um stjórnarandstöðuna, flissuðu mikið yfir því og glottu. Þetta var eiginlega á tímabili orðið kjánalegt, eða mér leið allavega eins og kjána. Flestir aðrir í stofunni engdust hinsvegar sundur og saman af hlátri yfir óborganlegum húmor og gamansemi félaganna. Skyndilega laust því að mér að líklega væri ég eina manneskjan þarna inni sem ekki hefði kosið sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum.
Þarna stóðu þessir tveir ágætu menn og flissuðu eins og amerískar smástelpur yfir málum eins og tímabundinnar ráðningar Hrafns Gunnlaugssonar sem Útvarpsstjóra, rausinu yfir fjölmiðlafrumvarpinu, neitunarvaldi forseta, Stóra hlerunarmálinu. (Fólk sem sagðist vera hlerað hafði hvort eð er ekkert að segja, afhverju ætti að eyða peningum í að hlera það, hahahahaha, góður, búmm, búmm, búmm). Að ógleymdu Baugsmálinu *flissi, flissi, fliss*
Páll Magnússon er næsti fyrirlesari og ég vona að mér líði betur í þeim tíma. Hann er alltaf með svo traustan og góðan bindishnút. Þannig menn kunna sig!
Athugasemdir
Heil og sæl, Sólrún Lilja !
Guð hjálpi þér, og samnemendum þínum, að hafa skálkinn Hannes Hólmstein Gissurarson fyrir kennara, með djölfuls frálshyggju predikanir sínar. Sjáðu til, Sórún Lilja, Hannes Hólmsteinn er, og hefir verið aðalhugmyndafræðingur þeirra forystumanna Sjálfstæðisflokksins, sem hvað lengst hafa gengið gegn hagsmunum okkar landsbyggðarmanna; s.s. Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde, og sjáum árangurinn, einkavæðingarskítbuxahátturinn og sérhagsmunagæzla þeirra, sem betur mega alger. Við þjóðernissinnar, sem í móti mælum, og viljum halda í hið gamla Ísland; með viðgangi gamalla byggðarlaga, víðs vegar um land hljótum að andæfa þessum niðurrifsöflum, í bráð og lengd.
Þykist vita, að Björn Bjarnason hafi farið á kostum, oft stutt í húmorinn, hjá honum. Þú nefnir Hrafn Gunnlaugsson, þann ágæta rithöfund og leikstjóra. Það er skömm að því, að Ríkissjónvarpið skuli ekki sýna meira, af hans frábæru verkum; þar er mikill snillingur á ferð.
Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 11:01
Sæl, Sórún Lilja og Keli !
Svona, svona.... Keli ! Hrafn er að minni hyggju einn þessarra misskildu snillinga, sjáum til dæmis snilldarverk hans, um síra Jón Magnússon. Varla til myndrænni lýsing, á átvaglinu Snorra; syni prestsekkjunnar og snilldarmeðferð hans, með skotvopn he he.
Myrkrahöfðinginn er, að mínum smekk eitt mesta snilldarverk Hrafns, skil þig Keli, að taki ögn tímakorn, að ná húmornum, í mörgum verka hans.
Kveðja, enn og aftur /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 11:21
Að sitja tíma hjá Hannesi Hólmstein er mitt eigið sjálfskaparvíti. Ég valdi málstofuna fram yfir, td. stjórnmál og sögu Afríku. Líklega í þeim tilgangi einum að ögra sjálfri mér.
Hef þó ennþá trú á því að þetta verði afar spennandi!
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, 23.1.2007 kl. 12:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.